mánudagur, janúar 17, 2005

Skálholt 2005

Niðurstöður helgarinnar:

  • Æfingarbúðir ERU þess virði að hætta lífi sínu fyrir
  • maður á ekki að pakka á 10 mín
  • KFC er góður matur, sérstaklega á Selfossi
  • Það er gaman að vinna
  • tannbursti er lífsnauðsynlegur
  • varasalvi líka
  • Það er gaman að syngja við matarborðið
  • jólaseíur eru til margs nýtilegar
  • ég er skemtileg
  • Strumparnir eru snild
  • Litli ljóti tenórinn er tímamóta verk
  • maður getur orðið góður á jójó ef maður æfir sig
  • agúrkur í gini eru viðbjóður
  • fullur kór er sætur kór
  • það er ógeðslega gaman að dansa vals
  • líka að syngja með gítar
  • og með píanó
  • það er ekki hægt að vera á mörgum stöðum í einu (því miður)
  • Ég þarf að sjá When Harry met Sally
  • og Muriels wedding
  • tær eru ógeð
  • Pepsi Max bætir hressir og kætir
  • ég hef gaman að óförum annara (sem er ljótt ég veit það)
  • Vínber eru góð kl sex um morgunin
  • en ekki þegar maður er of þreyttur til að opna pakkann
  • það er gaman að láta syngja til sín
  • 10 tíma svefn yfir heila helgi er ekki nóg
  • og þá verður maður ekki sætur (sérstaklega ekki þegar maður hefur gleymt öllu málingardótinu sínu heima, takk fyrir lánið stelpur)
  • en mikið óskaplega er gott að komast aftur heim til sín.

6 ummæli:

Ýrr sagði...

- Litli ljóti TENÓRINN var það
- jább, vals er skemmtilegur
- líka gjörningadans
- vínber? Ég man bara óljóst eftir vínberja stönglum...;)
- ég gleymdi tannbursta
- en ég var með vaselín
- fullur kór er skemmtilegur kór!

jibbbííííí

Anna sagði...

Þetta verðu leiðrétt eins og skot

Ásdís sagði...

hvaða hvaða... mínar tær eru sætar... er það ekki ??? En já þetta var magnað

Nafnlaus sagði...

hei! agúrkur í gini eru snilld

spilaði ég undir þennan vals??

oh eg man alltof lítið! :)

helgih

Anna sagði...

En ég man þetta allt saman, múahahaha

Nafnlaus sagði...

Ég var víst sofnuð þegar valsinn var stíginn... djöfullinn!