laugardagur, september 15, 2007

Raftæki

Loksins eftir hálfsárs langar samningavðræður og vangaveltur höfum við Hákon gert okkar fyrstu sameiginlegu fjárfestingu. Við keyptum okkur ristavél.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú meinar brauðrist er það ekki?

Anna sagði...

neibb, ristavél.

Nafnlaus sagði...

Heyrðu.... ´þú varst klukkuð góða!! annað: Skoðaðu myndir á www.barnanet.is/nafni og sjáðu ykkur Óliver Nóa og strumpagallann
kv
Gunnur

Nafnlaus sagði...

Hæhæ

Hitti Bryndísi talmeinafr. á fimmtudag. Hún var með alm. fræðslu um raddböndin og ýmis einföld ráð til að vernda röddina. Á að fylgja þeim í 5 vikur og hitta hana svo. Leist vel á hana.

Kærlig hilsen,
Fríða

P.S. líst þrusuvel á fjárfestinguna

Nafnlaus sagði...

Ristavél er góð fjárfesting og bráðnauðsynlegt raftæki á hverju heimili! Til lukku með hana! Er hún svona ekta dönsku þannig að maður þarf að snúa brauðinu?

Ég var nú að velta fyrir mér að skrifa um notkun á orðinu ristavél vs. brauðrist og hvort væri réttara að segja þar sem í tæiknu er enginn vél.... en held ég sleppi því!

Anna sagði...

Það mun allavega ekki breyta notkun minni/okkar á orðinu. :)

Og nei þetta er ekki svona sem þarf að snúa við, tími ekki borðplássi í svoleiðis. En hún er rauð og sanseruð og týpan heitir Chilli.

Fríða: Ég hefði getað sparað þér fyrsta tíman.

Gunns: ég er að hugsa!

Nafnlaus sagði...

Hmmm........það er hægt að rista fleira en brauð í henni (t.a.m. pönnukökur) -> ristavél

Nafnlaus sagði...

Er ekki rétt að fá mynd af herlegheitunum svo hægt sé að meta hvort um ristavél eða brauðrist sé að ræða

SÖK